Veterinaria
Myndir
Veterinarias
Áhugaverðar bloggsíður
01.02.2010 20:19:47 / siljae

Vetrarlandið Danmörk

Hér hefur verið snjór samfleytt í tæpa 2 mánuði 8| Allir Danir eru gáttaðir á þessu og muna varla eftir slíkum vetri. Við Íslendingarnir erum hins vegar mjög ánægð með þetta, enda allt skárra en vetrarrigningin í Kaupmannahöfn;) Eini mínusinn er náttúrulega að allir ofnar þurfa að vera á milljón, þar sem húsin hér eru illa einangruð. Er búin að ganga mig niður úr 2 pörum af ullarsokkum síðan í september og er byrjuð á því 3ja. Sem betur fer á ég yndislega ömmu, sem eyðir tíma í að stoppa í þá á sumrin fyrir mig:lol:
Annars er lítið að frétta. Prófin nýbúin og í þetta sinn fengum við ekkert frí. Fyrirlestrarnir byrjuðu strax í dag, þó síðasta próf hafi verið á fösudaginn. Skólabókakostnaðurinn fyrir þessa blokk er hærri en fyrir nýyfirstaðna, sem ég hélt að væri hreinlega ekki hægt. Hvaða manni dettur í hug að láta okkur kaupa bækur fyrir 110.000 ÍSK í EINU fagi sem við verðum í næstu 3 mánuði!! Reyndar munum við nota 2 þeirra aftur, en samt. Full mikið af því góða og það gengur lítið hjá mér að læra að skíta peningum (sem var áramótaheitið þetta árið):haha:
Bíllinn stendur sig mjög vel, þó lítið sé notaður. Lilli klifurmús getur vart beðið eftir vorinu, enda mun ferðum til Svíþjóðar þá fara fjölgandi. Ég er loksins líka búin að finna mér íþrótt sem ég get nokkurn veginn komist í gegnum án þess að gömul meiðsli taki sig upp;) eða ég deyji úr leiðindum. Er s.s. farin að boxa8) Hlakka svo til æfinga að það er magnað.........langt síðan manni hefur liðið svona. Þetta er bara alveg eins og í denn þegar maður bjó niður í íþróttahúsi.
Anyways.....hef þetta ekki lengar að sinni. Sá bara að það leið meira en mánuður milli færsla og varð því að gera eitthvað í þessu:$
Yfir og út

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.12.2009 10:44:53 / siljae

Snjór í Danmörku

Hér er hvít jörð og búin að vera í þó nokkuð marga daga. Skítakuldi, en sem betur fer ekki hvasst. Mér líður vel;)
Skólinn kláraðist á föstudaginn og að sjálfsögðu var fagnað með því að fara á A-vej á julefest. Kvöldið var alveg helvíti skemmtilegt með tilheyrandi drama, støvledans, bjór og snjóslag:klikk: Svaf síðan til klukkan að verða 16 í gær:lol:
Núna verður maður svo að reyna að lesa upp í einhverjum fögum......var víst ekki byrjuð að lesa í klinisk basiskursus og þar sem ég fer í próf í janúar, er ekki seinna vænna en að fara að kynna sér námsefnið. Mun því eflaust sitja sveitt yfir bókunum þar til ég fer til Þýskalands 22. des.
Við ætlum að keyra á húsbílnum suður og skila honum. Erum svo búin að kaupa lítinn bíl sem við keyrum til baka á. Verður gaman að sjá hvernig hann er. Vitum bara að þetta er opel kadett og ´88 módel;)
Annars dreymdi mig skemmtilegan draum í nótt. Hann var nú ekki mikið í samhengi en við sögu komu alla veganna hundurinn minn, hestarnir, húsið okkar á Höfn, dýralæknaháskólinn minn og fjölskyldan. Eflaust hef ég startað heilanum með því að horfa á Monty Roberts í gær og vera að dást að mynd af Tvísinu:haha:

» 1 hafa sagt sína skoðun

30.11.2009 20:02:09 / siljae

Nóvember blogg...

Síðasti séns til að blogga í þessum mánuði:p
Til að gera langa sögu stutta, þá fór ég heim strax eftir október prófin og átti þar yndislega 6 daga. Náði nú ekki að gera margt annað en gera merina mína semi-bandvana, en til þess var nú leikurinn gerður. Síðan byrjaði skólinn á fullu og ný fög. Það er búið að vera gaman í þeim en jafnframt útlit fyrir erfið próf fljótlega. Ég náði öllum síðustu prófum og færist því enn nær BS-ritgerð, sem á að skrifa/verja í vor. Ég er komin með leiðbeinanda og efni, en það mun vera ormar í hestum á Íslandi og hugsanlegt ónæmi. Leiðbeinandinn er síðan strax byrjaður að hita mig upp fyrir mögulegu áframhaldandi kandidatsverkefni (eftir ár 5) og hefur þegar komið á samböndum varðandi það:$ Fínt að hafa möguleika, en full snemmt fyrir manneskju sem á erfitt með að plana viku fram í tímann8)
Ég fer ekki heim um jólin:cry: Röðin er komin að Þýskalandi í ár og ætlum við að keyra á húsbílnum þangað og skila honum. Höfum haft hann í 2 ár og viljum ekki að hann "deyji" hér í Danmörku. Síðan fréttum við áðan að frændi Benjamins fann bíl fyrir okkur sem hann ætlar að lappa upp á. Þá getum við bara keyrt til baka í byrjun janúar;)
Jæja, get ekki munað eftir fleiru merkilegu í bili.....

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.10.2009 10:07:00 / siljae

Uppblásin bladra med bauga nidrá tær!

Thá er madur kominn í skólann (NB! Kl. 8:00 var start) eftir hytteturinn;) Helgin var rosa gód burt séd frá "ekta íslensku" vedri:$ Át allt of mikid af nammi, drakk allt of mikid af bjór, hreyfdi mig ekkert og svaf lítid!
Klárudum svo prófskýrsluna í gærkvøldi og ég skiladi henni í morgun. Fór sídan beint yfir í byggingu eiturefnafrædinnar og vid lærdum ad sprauta eitri upp í mýs:haha: Fæ ad eitra fyrir minni fyrstu mús vonandi í fyrramálid. Hlakka gedveikt til, en thad er thó pínu tricky ad halda í hnakkadrambid á thessum kvikindum. Einn strákurinn í morgun átti thvílíkt bágt med thetta og fólk var farid ad flissa og flissa......enda músin alltaf vid thad ad bíta hann:p Vonandi verd ég lagnari vid thetta;)
Er sídan búin ad dæla í mig kaffi og kóki til ad sofna ekki í fyrirlestrinum sem hefst eftir klukkutíma. Erum ad fara ad læra um kødkontrol svo ég vona ad sláturhúsamyndirnar verdi nógu djúsí til ad halda fyrir mér vøku8)
Annad óljóst........

» 4 hafa sagt sína skoðun

01.10.2009 22:11:36 / siljae

Bjór, próf, hyttetur, bjór.....

Þar með vitið þið hvað er framundan hjá mér. Er s.s. að fá mér öl yfir prófarkarlestri skýrslu nokkurrar sem við "Íslenska Mafían" höfum verið að setja saman og reikna síðastliðna daga. Þessi skýrsla er lokaverkefnið okkar, og þar með próf, í áfanganum basal ernæring í skólanum. Þetta gengur svona lala.....en mun betur eftir því sem fleiri "kliiiiizzzziiiiiiiitttt" heyrast!;)
Skiladagur er síðan á morgun (eða gálgafrestur á mánudagsmorgun) og þá getum við lagt af stað í árlegan hyttetur:d Að þessu sinni verður hann haldinn í Ishøj, svo þetta verður nýr staður fyrir alla:haha:
Ætli maður verði ekki dauður annað kvöld, annað hvort sökum my best friend eða þreytu:$
Læt mig samt hafa það........
Silja

» 3 hafa sagt sína skoðun

21.09.2009 17:26:06 / siljae

Tori Amos í nýja óperuhúsinu

Við Benjamin fórum að sjá Tori Amos í óperunni í gær. Ótrúlegur flutningur og enn magnaðri sýning. Ég er enn í vímu.;)
Annað nýtt, ég bókaði flug til Íslands í dag. Mun vera á klakanum frá 31. október til 6. nóvember. Ákvað að verðlauna mig þar sem ég klára næstu próf 30. október og ég veit að það verður rosa törn8| Auk þess er ekki víst að ég verði heima hjá mér um jólin.....eflaust komið að Þýskalandi í ár:^)

» 3 hafa sagt sína skoðun

15.09.2009 20:38:03 / siljae

Finn ekki lærdómsandann?

Er farin að halda að lærdómsandinn hafi gleymst á klakanum. Núna er byrjuð 3ja vikan í skólanum, verkefnin eru í fullum gangi og ENN nenni ég ekki að læra heima8| Sussss......á orðið erfitt með að töfra afsakanir úr hattinum:haha:
Síðan hefur lítið breyst í íbúðinni. Hún er enn í hálfgerðu "messi". Benny ætlar að fá lánaða borvél á morgun svo þessar blessuðu myndir geti farið upp á vegg. Þá kannski fer þetta að skríða saman.
Annars er maður bara frá 8-17 í skólanum, meira eða minna alla daga, og þar af leiðandi ekki í miklu stuði til neins þegar heim er komið. Hef t.d. aðeins orkað það 1x frá því ég kom að fara út í matvörubúð :^) Jamm....um að gera að láta karlinn hafa fyrir þessu fyrst maður er kominn með hring á hann;)
Stærstu fréttirnar eru eflaust þær að læknirinn minn aflýsti tímanum mínum á föstudaginn næsta og ég fór í fýlu :| Var búin að hlakka svo til að sýna honum Tvíbbalinginn og þá frestar hann tímanum um viku. Best að vera dugleg við að sitja á bossanum næstu vikuna svo hann verði ekstra þroskaður í lok næstu viku :d Hann sendir mig þá amk. ekki heim með "hægðatregðu" eins og snillinn í Þýskalandi á sínum tíma :$
Leyfi ykkur að fylgjast með gangi mála...............

» 5 hafa sagt sína skoðun

08.09.2009 20:36:44 / siljae

Eins mánaðar bloggþurrð lokið

Þar leið heill mánuður án þess að bloggað yrði. Nú er ég komin aftur til DK og byrjuð á fullu í skólanum sem gift kona8|
Jamm.....scary!
Anyways, það er brjálað að gera við að koma sér fyrir í íbúðinni sem við fluttum inn í (allra síðustu flutningar takk fyrir) rétt áður en ég fór heim. Skólinn hefur því setið mikið á hakanum og er ég varla byrjuð að læra:haha: kemur á óvart........
Jæja, ætla nú ekki að hafa þetta lengra að sinni. Þessi færsla er meira til að sjá hvort einhver lesi þetta blogg mitt og ef svo reynist ekki, mun ég eflaust ekki halda þessu úti lengur. Endilega kommentið því á færslu þessa ef þið eruð að lesa þetta. If not.....so be it;)

» 3 hafa sagt sína skoðun

14.07.2009 20:12:28 / siljae

Komin á klakann

Þá eru rúmar 2 vikur síðan ég kom til Íslands. Hef ekki enn fengið út úr seinna prófinu og er því auralaus andskoti eins og er. Byrjaði annars að vinna hjá Dýralæknastofu Dagfinns rétt eftir að ég koma heim og skemmti mér þar á daginn. Gaman að komast meira og meira inn í dýralæknastarfið. Hef síðan verið að stússast í hrossunum eitthvað, sótti m.a. tryppið mitt í síðustu viku og líst bara vel á. Hún er amk. ansi spræk og nóg tölt í henni. Verður gaman eftir nokkur ár að temja þessa:haha:
Annars fer mestur tíminn í að skipuleggja hestaferð og brúðkaup þessa dagana. Allt að smella saman........
;) 

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.06.2009 12:18:59 / siljae

Prófin nálgast.....

Thá er madur kominn heim úr sídasta Road-trip i bili. Fórum aftur á Pinsestævne hestamannamótid (eins og í fyrra). Var ferlega gaman, en thvílík steik8| Ég thurfti ad bera á mig á korters fresti í brekkunni. Er thví búin ad fara minn skammt af helgarferdaløgum í bili og verd núna ad opna bækur og hefja lestur. Fyrsta prófid mitt er 15. júní (munnlegt í parasitologi/invertebrat zoologi) og ég er ad frumlesa allt:$
Benny ætlar ad vera duglegur ad mála í thessari viku, svo vid ættum ad geta flutt (AGAIN) um helgina.....Í SÍDASTA SINN.....EVER (amk. medan ég er í dýró).
Annars er nú lítid ad frétta og thar sem ég hef bara takmarkadan pásutíma hér á bókó, ætla ég ad eyda honum á veraldarvefnum í leit ad slúdri, í stad thess ad reyna ad finna eitthvad upp sjálf:haha:

» 2 hafa sagt sína skoðun

15.05.2009 06:59:36 / siljae

Deutschland-blogg

Þá er ég komin til Þýskalands á ný. Kom í gærkvöldi eftir langt ferðalag frá Kaupmannahöfn til Stuttgart, með millilendingu í Zürich i Sviss.:$ Í Sviss var hálftíma seinkun á vélinni og þegar loks var komið út í vél þurfti einn farþeginn að byrja með einhver leiðindi sem tafði okkur hin um tæpa klukkutíma í viðbót. Lögreglan reyndi að fá manninn til að fara frá borði, flugstjórinn og flugfreyjurnar reyndu að tala hann til, en ekkert gekk. Að lokum (og það skil ég ekki) fékk hann að sitja í vélinni og við gátum lagt af stað:evil: Langaði að berja manninn með pönnu!;)
Svo fékk ég þýskan bjór þegar til foreldra Benny var komið og þá var heimurinn aftur í lagi:haha:
Endaði reyndar á að vakna kl. 6:30 og er síðan þá búin að borða morgunmat, kveðja Jasmin og Mark sem voru að legga af stað í 4 vikna ferð til Tælands, og sit núna að velta fyrir mér hvað ég eigi næst að gera. Held ég fari út að hlaupa í rigningunni, í sturtu, borði hádegismat og leggi síðan af stað til Dani sem býr í Bietigheim. Ætla að eyða deginum með henni og kvöldinu svo með fam. Mokry;)
Á morgun er síðan kveðjuhófið fyrir Bruno. Er með skrítna tilfinningu fyrir þessum hittingi. Hlakka mikið til að hitta alla (amk. flest alla:lol:) en held jafnframt að þetta verði pínu erfitt. En á móti kemur að mér finnst ég alltaf vera að fara "heim" þegar ég keyri upp að búgarðinum, sem er besta tilfinning ever þegar maður hefur verið lengi að heiman:!:
Jæja, ég ætla að drífa mig út.
Later

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.05.2009 21:26:42 / siljae

Hvíl í friði

Í morgun lést Bruno Podlech, fyrrum yfirmaður minn á búgarðinum der Wiesenhof. Banameinið var krabbamein sem hann hafði barist við í rúm 2 ár. Hann var ekki nema 59 ára þegar hann lést. Ég vissi svo sem af því að hver dagur síðustu 2-3 vikna gæti verið hans síðasti, en það virðist aldrei hafa neitt að segja og maður er ekkert betur undirbúinn.
"Kveðjuhófið" hans verður haldið 16. maí í reiðhöllinni á Wiesenhof. Kannski viðeigandi að það verði haldið þarna, þar sem ég var stödd þar fyrir um 10 árum að fagna fimmtugsafmæli hans.
Ég á honum margt að þakka og viðhorf mitt til hestamennsku og tamningaraðferðir mínar gjörbreyttust eftir okkar kynni.

R.I.P.


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.04.2009 07:36:28 / siljae

Brjóstsviði og hitabylgja

Fékk þennan líka mesta brjóstsviða sem ég hef á ævi minni fengið í gærkvöldi. Er enn með hann. Get varla staðið upprétt. Húki við tölvuna að skrifa þessi orð:( Ef einhver veit ráð við þessu (sem ekki felur í sér matarsóda) endilega sendu mér sms eða línu....þetta er ekki spaug.
Góða veðrið er síðan mætt til Danmerkur. Nú fer að koma sá tími að ég flý inn í hús. Reyndar gæti orðið breyting á því, þar sem íbúðin sem við flytjum í um helgina er svo viðbjóðsleg að ég mun væntanlega ekki koma til með að vilja vera þar mikið meira en bara þetta rétt nauðsynlegasta:$
Annars er lítið að frétta. Ég er hvorki byrjuð að læra né pakka:haha: Enn að bíða eftir andanum ;)
Ætla svo í Tívolíið í kvöld (svo lengi sem brjóstsviðinn er farinn) á föstudagstónleika. Í kvöld spila Spleen United, sem eiga víst að vera ágætir. Svo VERÐ ég að pakka og flytja á morgun:s

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.04.2009 09:15:11 / siljae

Gamanid búid í bili

Thá er skólinn byrjadur og Darri bródir, sem var í heimsókn í 10 daga, farinn heim á ný :whut:
Ég nádi ad gera margt í fríinu, las 1 bók (sem ekki er skólabók), var bitin af farmaur í NAFLANN 8| (er med sjúklega naflafóbíu fyrir thá sem thekkja mig ekki thad vel), fór til Svíthjódar yfir helgi, rústadi Indverjum í fótbolta, fékk mega hardsperrur, vard thrítug og svona mætti lengi telja.
Er sídan bara ad bída eftir einkunnum og reyna ad fá flutnings-andann yfir mig:s. Tharf víst ad flytja enn á ný um helgina:evil:

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.04.2009 08:30:38 / siljae

Dirty something!

Eins og indverja-mágur hans Benjamins myndi segja:haha:

Já, stór dagur í gær. Kláraði prófin og twenty-something á einu bretti.;)

Ætla því að fagna í gær með því að gera ekki neitt. Á það alveg skilið eftir mikinn lestur síðustu mánuði. Vona svo sannalega að næsta blokk verði ekki jafn rosaleg hvað lærdóm varðar....sérstaklega þar sem vorið er að koma:lol:

Yfir og út,
Silja

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 20
Klukkan